Davíð Þór Guðlaugsson heiti ég og er 23 ára. Áhugi minn á ljósmyndun hefur verið til staðar frá unga aldri og ákvað ég svo árið 2007 að sökkva mér dýpra í áhugamálið og keypti ég mér mína fyrstu stóru myndavél og þá fóru hlutirnir að
rúlla af meiri alvöru.
Ég er með stúdentspróf af félagsfræðibraut frá Fjölbrautaskóla Suðurlands og tók samhliða því Grunnnám í upplýsingatækni og fjölmiðlagreinum. Haustið 2007 fór ég í Grafíska miðlun(prentsmíð) í Iðnskólanum í Reykjavík (Tækniskólanum) og útskrifaðist þaðan um jólin 2007. Um áramótin 2008 ákvað ég að halda áfram námi við Iðnskólann og lauk þá námi í ljósmyndun í maí 2008. Haustið 2008 fór ég á 3. mánaða ljósmyndanámskeið hjá bandarískum ljósmyndara að nafni Brooks Walker. Vorið 2009 tók ég síðan sveinspróf í Grafískri miðlun og er ég því orðinn Grafískur miðlari (prentsmiður).
Ég starfa við umbrot og útlitshönnun á DV, auk þess að hanna og setja upp auglýsingar fyrir blaðið. Þar áður vann ég við umbrot og útlitshönnun á helstu tímaritum landsins hjá útgáfufélaginu Birtíngi.
Ef þú hefur áhuga á að eignast mynd/ir frá mér eða hefur einhverjar fyrirspurnir, hafðu þá samband á netfangið david@davidthor.org
© myndir á þessum vef eru varðar
af höfundarrétti